Innlend útgjöld áliðnaðar hafa aldrei verið meiri en á síðasta ári er þau námu liðlega 100 milljörðum króna. Þetta kom fram í máli Magnúsar Þórs Ásmundssonar, formanns Samáls, á ársfundi samtakanna sem nú fer fram á Grand Hótel. Kaup á vöru og þjónustu af innlendum fyrirtækjum námu liðlega 40 milljörðum króna, að raforkukaupum frátöldum.
Lesa meira
Á síðasta ári greiddi áliðnaðurinn rúmlega 60 þúsund reikninga fyrir innlendar vörur og þjónustu, samtals að upphæð 40 milljarða króna, fyrir utan raforkukaup. Yfir 700 innlend fyrirtæki nutu góðs af þessu. Innlend útgjöld áliðnaðar námu samtals rúmlega 100 milljörðum króna, eða sem samsvarar 275 milljónum króna á degi hverjum. Þetta er meðal þess sem finna má í nýju upplýsingablaði sem gefið var út í tengslum við ársfund Samáls.
Lesa meira
Fjárfestingar vegna framkvæmda við Kárahjúkavirkjun og byggingu Alcoa Fjarðaáls á árunum 2004 til 2007 eru dvergvaxnar í samanburði við aðra innlenda þensluvalda á sama tíma, að því er fram kom í máli Magnúsar Þórs Ásmundssonar, formanns Samáls, á ársfundi samtakanna sem haldinn var í gær.
Lesa meira
75% íbúa í Hafnarfirði ánægðir með yfirstandandi stækkunarframkvæmdir í Straumsvík