Hagkerfið
Uppbygging stóriðju á Íslandi hefur umbreytt hagkerfinu hér á landi, dregið úr hagsveiflum og skotið fleiri stoðum undir rekstur þjóðarbúsins. Þá hefur hún stuðlað að 25% raunlækkun á rafmagnsverði til almennings. Frá árinu 1969 hefur hlutur áls í vöruútflutningi tæplega fimmfaldast og árið 2008 var hlutur áls meiri en hlutur sjávarútvegs í fyrsta sinn. Á síðasta ári námu útflutningstekjur af áli um 226 milljörðum króna sem svaraði til 23% heildarútflutningsverðmæta þjóðarinnar.
