4,2 milljónum króna úthlutað úr Samfélagssjóði Rio Tinto Alcan

Úthlutað hefur verið úr Samfélagssjóði Rio Tinto Alcan, álversins í Straumsvík, vegna þeirra styrkumsókna sem bárust sjóðnum frá 1. október 2011 til og með 31. janúar 2012. Styrkveitingar að þessu sinni námu 4,2 milljónum króna. Sjóðnum bárust alls 60 umsóknir og hlutu 12 verkefni styrk. Samfélagssjóður álversins í Straumsvík styrkir verkefni í eftirfarandi málaflokkum sem endurspegla þau gildi sem fyrirtækið leggur áherslu á:

  • Heilsa og hreyfing
  • Öryggismál
  • Umhverfismál
  • Menntamál
  • Menningarmál, þar með talin góðgerðarmál og samfélagsverkefni af ýmsu tagi

Hæstu styrkina, 500.000 krónur, hljóta:

  • Stjörnufræðivefurinn verkefnið Jarðarboltar - kennslutæki fyrir leikskóla landsins
  • Myndgreiningardeild Landspítala Háskólasjúkrahús – til tækjakaupa
  • Björgunarsveitin Ársæll – til kaupa á álkistum svo hægt sé að flytja búnað við björgunaraðgerðir
  • Iðnskólinn í Hafnarfirði - verkefnið „Heilsueflandi Framhaldsskóli“
  • Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík – stuðningur við nýsköpunarverkefni í áfanganum „Hönnun X“
  • Samfés, samtök félagsmiðstöðva á Íslandi – stuðningur við starfsemi

Aðrir sem hljóta styrki að þessu sinni:

  • Elligleði – vegna söngskemmtana fyrir aldraða með heilabilun – 300.000 kr.
  • Íþróttasamband Fatlaðra – vegna þátttöku Íslands í Ólympíumóti fatlaðra – 250.000 kr.
  • Kór Öldutúnsskóla – stuðningur við starf kórsins – 200.000 kr.
  • Íþróttafélag Fatlaðra í Reykjavík – stuðningur við starf félagsins – 200.000 kr.
  • Fjallskiladeild Landmannaafréttar – styrkur til landbóta við Áfangagil – 200.000 kr.
  • Lýðheilsufélag Læknanema – vegna blóðgjafamánaðar Háskóla Íslands – 30.000 kr
Sjá einnig