Álverið hefur nú þegar skaðast af aðgerðum

Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi áversins í Straumsvík, segir í samtali við Heimi Má Pétursson á Vísi.is að komi útflutningsbann á fyrirtækið til framkvæmda muni það hafa gríðarlega alvarleg áhrif á fyrirtækið. Aðgerðir verkalýðsfélaganna hafi nú þegar valdið fyrirtækinu miklu tjóni.

Ólafur Teitur segir stjórnendur fyrirtækisins vona að félagsdómur dæmi boðað útflutningsbann ólöglegt. En ef af því verði hafi það mikil áhrif á hagsmuni fyrirtækisins.

„Það er grafalvarlegt fyrir okkar fyrirtæki eins og öll önnur að geta ekki selt framleiðsluna og sjá kannski ekki fram á að geta það í ótiltekinn tíma,“ segir Ólafur Teitur.

Álverið framleiðir rúm tvö hundruð þúsund tonn af áli ári og flytur því út um 4.000 tonn á viku. Ólafur Teitur segir vonbrigði að ekki skuli hafa náðst að semja við verkalýðsfélögin.

„Eftir að við höfðum boðið á þrettándanum að okkar mati mjög ríflegar launahækkanir ofan á laun sem fyrir eru mjög samkeppnishæf í landinu. Því var hafnað því verkalýðsfélögin hafa ekki ljáð máls á því að við fáum að sitja við sama borð og öll önnur fyrirtæki varðandi útvistun verkefna,“ segir Ólafur Teitur.

En þar stendur hnífurinn einmitt í kúnni og deilan virðist vera kominn í algeran hnút. Ólafur Teitur segir gildandi hömlur á verktöku hafa verið í gildi í bráðum hálfa öld en frá því þær hafi verið settar hafi starfsumhverfi fyrirtækisins breyst mikið.

„Við til dæmis njótum ekki lengur neinna sérkjara varðandi skatta eins og við gerum áður. Eftir því sem við færumst nær almennu íslensku viðskiptaumhverfi hvað varðar t.d. skatta og gjöld finnst okkur að þróunin eigi að vera á svipaðan hátt hvað varðar vinnumarkaðsleg mál. Að við fáum að njóta sama umhverfis og önnur fyrirtæki njóta. Sem við fáum ekki í dag,“ segir Ólafur Teitur.

Áður boðaðar vinnustöðvanir og boðun útflutningsbannsins nú hafi þegar haft skaðleg áhrif á fyrirtækið.

„Þetta hefur auðvitað strax þau áhrif að viðskiptavinir okkar eru mjög uggandi um hvort þeir fái frá okkur málm eða ekki. Við erum ekki að framleiða inn í einhverja heimsmarkaðs púllíu heldur beit upp í pantanir tiltekinna viðskiptavina sem eru í sambandi við okkur og biðja okkur að framleiða ákveðna vöru og afhenda hana á ákveðnum degi. Þannig að þeir eru nú þegar uggandi um hovort þeir geti fengið sínar pantanir uppfylltar eða ekki. Við töpuðum tugum þúsunda tonna af pöntunum á síðasta ári þegar vofði yfir verkfall hér. Þannig að þetta hefur þegar valdið okkur miklu tjóni og heldur áfram að gera það þessi óvissa,“ segir Ólafur Teitur Guðnason.

Hér má lesa viðtalið á Vísi.is.

Sjá einnig