Aukin jákvæðni í garð áliðnaðar á Íslandi

Tæplega 61% landsmanna eru jákvæðir gagnvart íslenskum áliðnaði samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Capacent Gallup vann fyrir Samtök álframleiðenda á Íslandi. Þetta er nokkur aukning frá síðustu könnun, er hlutfall jákvæðra var tæp 56%. Liðlega 21% landsmanna eru hlutlausir í afstöðu sinni og um 18% aðspurðra segjast neikvæðir gagnvart iðnaðinum.

Íbúar austurlands eru jákvæðastir gagnvart áliðnaði hér á landi en 74% aðspurðra þar sögðust jákvæð gagnvart greininni samanborið við 60% íbúa höfuðborgarsvæðisins. Á suðurnesjum var hlutfall jákvæðra 71%.

Karlar eru heldur jákvæðari en konur og að sama skapi er áberandi munur á afstöðu eftir stjórnmálaflokkum. Um 88% þeirra sem styðja Sjálfstæðisflokkinn segjast jákvæð gagnvart áliðnaði, og 85% stuðningsmanna Framsóknarflokks eru sama sinnis. Nærri 50% kjósenda Samfylkingar segjast jákvæðir gagnvart áliðnaði en um 25% neikvæðir. Kjósendur Vinstri grænna eru neikvæðastir gagnvart iðnaðnum; 21% aðspurðra úr hópi stuðningsmanna flokksins segjast vera jákvæðir í garð áliðnaðar en 55% neikvæðir.

Sjá má ítarlegar niðurstöður í svari við spurningunni hér.

Könnunin, sem var netkönnun,  var gerð dagana 23. janúar til 1. febrúar. Úrtak var 1.450 manns á landinu öllu, valið handahófskennt úr viðhorfahópi Capacent Gallup. Svarhlutfall var 60,1%.

Skoðanakönnunin í heild sinni verður kynnt á ársfundi Samtaka álframleiðenda, sem haldinn verður 27. febrúar.

Sjá einnig