Bendir til styrkleika álversins

„Við fylgjumst með eins og aðrir hver verða næstu skref því að Ísal er fyrirtæki sem hefur mikla þýðingu fyrir íslenskt efnahagslíf,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í viðtali í Morgunblaðinu, innt eftir viðbrögðum við riftun á kaupsamningi Norsk Hydro á öllu útgefnu hlutafé í álverinu í Straumsvík af Rio Tinto.

Í tilkynningu frá Norsk Hydro í síðustu viku kom fram að það hefði tekið lengri tíma en talið var að fá samþykki samkeppnisyfirvalda framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Í kjölfarið hefði verið farið fram á riftun tilboðsins og sú beiðni verið samþykkt.

„Áhugi Hydro var til marks um styrk fyrirtækisins. Nú dettur þetta upp fyrir, ekki af því að sá áhugi hafi neitt breyst heldur vegna annarra óskyldra þátta sem varða samþykki
samkeppnisyfirvalda í Evrópu,“ segir Þórdís Kolbrún. „Þetta virðist því ekki gerast vegna neinna veikleika hjá fyrirtækinu. Ef eitthvað er bendir þetta kannski til þess að fyrirtækið sé sterkara en menn áttuðu sig á, fyrst það er talið vega svona þungt á Evrópumarkaði að það hafi veruleg áhrif á samkeppnisstöðu aðila,“ segir Þórdís Kolbrún.

Hér má lesa fréttatilkynningu frá Rio Tinto Alcan um málið og hér  er fréttatilkynning Norsk Hydro. 

Sjá einnig