Rannveig Rist, forstjóri ÍSAL, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Daníel Bjarnason, tónlista…
Rannveig Rist, forstjóri ÍSAL, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Daníel Bjarnason, tónlistarmaður og hljómsveitarstjóri, sem hreppti íslensku bjartsýnisverðlaunin í dag. ÍSAL er bakhjarl verðlaunanna.

Daníel Bjarnason fékk bjartsýnisverðlaunin

Daníel Bjarnason, tónlistarmaður og hljómsveitarstjóri, hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin fyrr í dag, eins og lesa má um í frétt á RÚV. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenti verðlaunin á Kjarvalsstöðum sem eru áletraður gripur úr áli frá ISAL í Straumsvík og ein milljón króna í verðlaunafé.
 

Daníel er fæddur árið 1979, stundaði nám við Tónlistarskóla FÍH og Tónlistarskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan árið 2003. Hann stundaði framhaldsnám í hljómsveitarstjórn við Tónlistarháskólann í Freiburg í Þýskalandi á árunum 2004-2007.

Hann hefur unnið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og hljómsveit Íslensku óperunnar, auk erlendra hljómsveita á borð við Fílhamróníusveitar Los Angeles og New York, sinfóníuhljómsveita í Tornotó, Tókýó og Gautaborg og mörgum fleiri.

Á árinu 2018 voru frumflutt tvö ný verk eftir Daníel; Óperuna Brothers og fiðlukonsert. Verkin voru bæði flutt erlendis. Brothers var valin tónverk ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum og hlaut einnig Reumert-verðlaunin sem ópera ársins í Danmörku. Fiðlukonsertinn var frumfluttur af Pekka Kuusisto og Fílharmóníusveit Los Angeles og svo víða um heim.

Um síðastliðna helgi var leiksýningin Ríkharður III frumsýnd með tónlist Daníels Bjarnasonar í Borgarleikhúsinu og á nýársdag var upptaka af sýningu Íslensku óperunnar Bræður sýnd Rúv.

Daníel hefur verið staðartónskáld hjá Frits Philips Muziekgebouw í Eindhoven síðan 2016.  Hann gegndi einnig stöðu staðarlistamanns hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands 2015-2018. Daníel hefur gefið út hljómdiska undir fána Bedroom Community og Sono Luminus.

Bjartsýnisverðlaunin eru menningarverðlaun sem hafa verið afhent árlega frá árinu 1981. Upphafsmaður þeirra var danski athafnamaðurinn Peter Bröste en álverið ISAL í Straumsvík hefur verið bakhjarl verðlaunanna frá því að Bröste dró sig í hlé árið 2000. Forseti Íslands hefur frá upphafi verið verndari verðlaunanna.

 

Sjá einnig