Eftirspurn eftir áli að aukast

„Í áliðnaði er fjárfest til lengri tíma. Það er auðvitað ljóst að á áratugum verða miklar sveiflur í verði á áli og í augnablikinu er álverð lágt,“ segir Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls í viðtali sem Kolbeinn Óttarsson Proppé á við hann í Fréttablaðinu í dag.

Í fréttinni kemur fram að árið í fyrra hafi verið ágætt fyrir áliðnað í heiminum, en alltaf sé óvissa á mörkuðum. Nú séu blikur á lofti í efnahag Evrópou vegna Grikklands og þá hafi Kínverjar leitað fyrir sér með útflutning á áli þar sem hægst hefur á hagvexti í Kína.

„Góðu fréttirnar eru þær að eftirspurn er að aukast mjög hratt og mun hraðar en spár gerðu ráð fyrir. Hún hefur á fáum árum farið úr 40 milljónum tonna í um 60 milljónir, sem næst væntanlega á þessu ári eða næsta,“ segir Pétur.

„Það er gríðarlega eftirspurnaraukning sem er meðal annars knúin áfram af kröfu stjórnvalda um að dregið sé úr losun gróðurhúsalofttegunda í bílaflotanum. Það er bara ein leið til þess og það er að létta bílana og fyrir vikið hafa bílaframleiðendur verið að nota ál í miklu meiri mæli en áður og það sér ekki fyrir endann á þeirri þróun. Það eru því heilbrigðismerki á álmarkaðnum.“

Sjá einnig