Toyota í álið

Þeim fer fjölgandi bílaframleiðendunum sem smíða bíla sína úr áli til að létta þá. Toyota hefur fram að þessu ekki notað mikið ál í bíla sína en nú verður breyting á, að því er fram kemur í frétt Finns Orra Thorlacius, sem skrifar um bíla fyrir Vísir.is og Fréttablaðið.

Toyota mun að auka notkun á áli um 100.000 tonn á ári einungis með því að breyta bílunum Toyota Camry og Lexus RX jeppunum fyrir Bandaríkjamarkað. „Þessi notkun gæti aukist mjög ef fleiri bílgerðum verður breytt,“ segir í fréttinni.

„Toyota Camry og Lexus RX eru reyndar ekki einu bílgerðirnar frá Toyota sem eru að hluta byggðir úr áli þar sem Toyota hefur til nokkurs tíma notað umtalsvert ál til framleiðslu á Prius tvinnbílnum og Scion FR-S bílnum sem einnig er ætlaður fyrir Bandaríkjamarkað.

Þetta skref Toyota nú er ekki líkt eins afgerandi og Ford tók með því að að smíða Ford F-150 pallbílinn að mestu úr áli, en sá bíll er söluhæsta bílgerð í Bandaríkjunum og krefst notkun áls í þann eina bíl mörgum sinnum meira magns en breytingin á Camry og Lexus RX. Það er hinsvegar mikið mál fyrir áliðnaðinn að stærsti bílaframleiðandi í heimi hafi tekið þetta skref til aukinnar notkunar á áli.“

Sjá einnig