Gefum jólaljósum lengra líf

Endurvinnum álið í sprittkertunum

Endurvinnsluátakinu „Gefum jólaljósum lengra líf – endurvinnum álið í sprittkertunum“ hefur verið ýtt úr vör. 

Tilgangurinn með átakinu er að fá fjölskyldur til að skila álbikurunum undan sprittkertunum í endurvinnslu og efla vitund Íslendinga um mikilvægi þess að endurvinna það ál sem fellur til á heimilum og hjá fyrirtækjum. Það má ætla að á ári hverju séu notuð um 3 milljónir sprittkerta hér á landi. Til að setja hlutina í samhengi má benda á, að álið úr þremur sprittkertum dugar í eina drykkjardós og einungis þarf þúsund sprittkerti til að búa til reiðhjól.

Hægt verður að skila sprittkertum á um 90 endurvinnslu- og móttökustöðvar um allt land auk þess sem fólk mun geta sett kertin í grænu tunnurnar sem eru í boði hjá Gámaþjónustunni og Íslenska gámafélaginu.

Að átakinu standa Endurvinnslan, Fura málmendurvinnsla, Gámaþjónustan, Íslenska gámafélagið, Málmsteypan Hella, Plastiðjan Bjarg, Samál – Samtök álframleiðenda, Samtök iðnaðarins og Sorpa.

Álið sem safnast verður endurunnið hér á landi, en nánar verður tilkynnt um útfærslu þess þegar söfnunarátakinu lýkur í lok janúar. 

Frumkvæðið að átakinu kom frá Samáli, en álframleiðendur hafa í samstarfi við endurvinnslustöðvar staðið fyrir sambærilegum átaksverkefnum í Noregi, Finnlandi, Svíþjóð og á Írlandi. „Það finna allir að bylgjuhreyfinguna í samfélaginu, fólk vill leggja sitt af mörkum til að draga úr sóun, flokka og skila til endurvinnslu,“ segir Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls. „Öll þau góðu fyrirtæki og samtök sem standa að átakinu tóku strax vel í hugmyndina og þá var ekki eftir neinu að bíða!“

Ál hefur þá sérstöðu að það má nýta aftur og aftur án þess að það tapi upprunalegum eiginleikum sínum. Einungis þarf um 5% af orkunni sem fór upphaflega í að framleiða álið til að endurvinna það. Það þýðir að mikil verðmæti leysast úr læðingi við endurvinnslu álsins og færir það stoðir undir rekstur endurvinnslufyrirtækja víða um Evrópu. Þá dregur orkusparnaðurinn við endurvinnslu áls verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda, enda verður almennt mest losun frá orkuvinnslunni við framleiðslu áls í heiminum. 

Átakið hefst þriðjudaginn 5. desember og mun standa til 31. janúar.

Sjá einnig