ISAL og Samtökin ´78 undirrita samstarfsyfirlýsingu

Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, og Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ´78, hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um að gera álver ISAL í Straumsvík vottuðum hinseginvænum vinnustað. Samstarfið felst í því að skapa vettvang fyrir umræðu og upplýsingaöflun sem og miðlun fræðslu, rannsókna og þróunarstarfs í málefnum hinsegin fólks. Báðir aðilar eru sammála um að gera þarf meira til að bæta sýnileika og stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Umræðan síðustu misserin hefur aukinheldur sýnt að allir þurfa að leggjast á eitt til að bregðast við bakslagi í réttindum hinsegin fólks.

Rannveig Rist: „Ég fagna samstarfi okkar við Samtökin ´78. Við viljum leggja okkar af mörkum og leggja áherslu á að öll upplifi sig velkomin í Straumsvík. Með samstarfinu við Samtökin ´78 viljum við opna umræðuna enn frekar, uppfræða starfsfólk okkar um fjölbreytileikann og á sama tíma aðlaga okkar vinnustað og menninguþörfum ólíkra einstaklinga. Við viljum stuðla að því að öll eigi jafna möguleika og að á vinnustaðnum sé komið fram af virðingu og fordómaleysi. Álverið í Straumsvík er stór vinnustaður og eðlilegt að starfsfólkið sé ákveðin spegilmynd af samfélaginu í heild sinni. Við sækjum styrk í fjölbreytileika sem er líka eitt af áherslumálum móðurfélags okkar Rio Tinto.

Daníel E. Arnarsson: „Við hlökkum afskaplega mikið til samstarfsins við Rio Tinto, við höfum verið í góðum viðræðum síðustu mánuði og við hjá Samtökunum ’78 finnum fyrir miklum stuðningi og áhuga á málefnum hinsegin fólks. Rio Tinto er að taka stór og mikilvæg skref í baráttunni og það viðmót og áhugi sem við höfum fundið fyrir hjá fyrirtækinu er algjörlega til fyrirmyndar. Það er samfélaginu öllu mikilvægt að fólk gefi ekki undan í baráttunni og sérstaklega nú þegar við finnum fyrir aukinni heift og andúð gegn hinsegin samfélaginu. Til hamingju starfsfólk ISAL“.

Sjá einnig