Norðurál óskar eftir að trúnaði um orkusamninga verði aflétt

Norðurál óskar eftir að trúnaði um orkusamninga verði aflétt og telur að ný skýrsla Fraunhofer staðfesti að núverandi verðstefna sé ósamkeppnishæf. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Norðuráli. Þar segir ennfremur: 

Norðurál telur að nýútkomin skýrsla Fraunhofer um samkeppnishæfni íslenskrar stóriðju sé um margt góð og fagnar því að iðnaðarráðherra skuli hafa tekið það skref að láta óháðan aðila meta samkeppnishæfni stóriðju á Íslandi, með tilliti til raforkuverðs. Stóriðja er ein af grunnstoðum íslensks atvinnulífs og er háð samkeppnishæfu raforkuverði.

Hvað varðar niðurstöðu Fraunhofer skýrslunnar þá staðfestir hún það sem Norðurál hefur bent á, að meðalverð raforku hefur verið samkeppnishæft. Skýrslan staðfestir einnig að það raforkuverð sem nú stendur til boða á Íslandi er ekki samkeppnishæft við það sem stendur til boða í Noregi og Kanada.

Norðurál tekur heils hugar undir með skýrsluhöfundum um að þörf sé á meira gagnsæi á íslenskum orkumarkaði. Norðurál hefur því óskað eftir því við orkusala að trúnaði verði aflétt af langtíma orkusölusamningum milli fyrirtækjanna eins fljótt og auðið verður. 

Nánari upplýsingar veitir Sólveig Kr. Bergmann, yfirmaður samskipta hjá Norðuráli, í síma 820 4004 eða í tölvupósti solveig@nordural.is

 

Sjá einnig