Samtök iðnaðarins telja að með sölu á upprunaábyrgðum sé verið að fórna mun meiri hagsmunum fyrir mi…
Samtök iðnaðarins telja að með sölu á upprunaábyrgðum sé verið að fórna mun meiri hagsmunum fyrir minni.

SI telja þátttöku í upprunaábyrgðum orka tvímælis

Í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins kemur fram að samtökin telja að þátttaka hérlendra raforkufyrirtækja í upprunaábyrgðum orki verulega tvímælis og grafi undan ímynd Íslands sem lands endurnýjanlegrar orku. Í greiningunni er samantekt á þeirri gagnrýni sem samtökin hafa fram að færa hvað þetta varðar.

Í greiningunni er þeirri spurningu svarað játandi hvort upprunaábyrgðir hafi áhrif á markaðssetningu erlendis. Samtök iðnaðarins telja að með sölu á upprunaábyrgðum sé verið að fórna mun meiri hagsmunum fyrir minni. Sala upprunaábyrgða inn á Evrópumarkað skerðir ímynd Íslands sem lands endurnýjanlegra orkugjafa og ímynd íslensks atvinnulífs. Íslensk stjórnvöld hafa um áratuga skeið markaðssett Ísland sem land hreinna orkugjafa, og gera enn á ýmsum vettvangi, þrátt fyrir að kerfi upprunaábyrgða kunni að standa í vegi fyrir slíkum fullyrðingum. Tekjur íslenskra raforkufyrirtækja af sölu upprunaábyrgða eru um 1 ma. kr. á ári sem er ekki há fjárhæð í stóra samhenginu og í samanburði við hreinleikaímynd Íslands er viðkemur raforku. Sala upprunaábyrgða hefur það í för með sér að raforkubókhald Íslands breytist þannig að hér mætti ætla að upprunu raforku sé 55% jarðefnaeldsneyti, 34% kjarnorka og einungis 11% endurnýjanleg orka.

Hér er hægt að nálgast greininguna í heild sinni.

Fréttablaðið, 19. febrúar 2020.

mbl.is, 19. febrúar 2020.

Vísir, 19. febrúar 2020.

Sjá einnig