Sjálfboðaliðar Fjarðaáls taka til hendinni.
Sjálfboðaliðar Fjarðaáls taka til hendinni.

Sjálfboðaliðar á vegum Fjarðaáls taka til hendinni

Hópur sjálfboðaliða á vegum Fjarðaáls, yfir 70 manns, tók sig saman um síðustu helgi til að vinna að endurbótum á íþróttasvæði Þróttar í Neskaupstað. Allt umhverfi íþróttavallarins var fegrað og snyrt, arfi reittur, veggir og geymslur málaðar og nýjar fánastangir settar upp. Árangurinn lét ekki á sér standa: Vinsælasti rúntur bæjarbúa um kvöldið var að aka framhjá íþróttasvæðinu til virða fyrir sér dagsverkið.

Á hverju ári taka starfsmenn Alcoa Fjarðaáls saman höndum með nágrönnum sínum og vinna hópverkefni fyrir frjáls félagasamtök eða stofnun í sínu samfélagi. Má nú víða sjá merki þess fyrir austan. Verkefnið á Neskaupstað var eitt svokallaðra Actionverkefna sem Samfélagssjóður Alcoa styrkir með fjárframlögum, en mikil áhersla er lögð á virkt sjálfboðastarf starfsmanna hjá fyrirtækinu um allan heim.

Mótorcross á Reyðarfirði

Verkefnið á Neskaupstað var ekki eina Actionverkefni síðustu helgar því á Reyðarfirði unnu rúmlega 20 manns að viðhaldi á 1.300 metra langri mótorcrossakstursbraut Vélhjólaíþróttaklúbbs Fjarðabyggðar til að gera brautina klára fyrir æfingar og keppnir.

Á laugardag stendur svo til að endurmerkja gömlu póstleiðina milli Fáskrúðsfjarðar og Breiðdals um Reindalsheiði með félögum í Göngufélagi Suðurfjarða. Reindalsheiði er vörðuð póstleið og var aðalleið milli Breiðdals og Fáskrúðsfjarðar áður en vegasamband komst á. Gönguleiðin er um 9 kílómetrar, bæði falleg og skemmtileg enda ein margra vinsælla gönguleiða ferðamanna um Austfirði.

Þátttakendum verður skipt í tvo hópa en merkja á leiðina frá báðum endastöðum, við Tungu í Fáskrúðsfirði og Gilsá í Breiðdal. Lagt verður af stað klukkan 10 í fyrramálið og er ætlunin að mála eldri stikur og setja nýjar í stað ónýtra. 

Sjá einnig