Trúnaði aflétt af orkusamningi Norðuráls og Orkuveitu Reykjavíkur

Orkusölusamningur Norðuráls við Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið birtur í heild sinni á vefsíðu Norðuráls SMELLIÐ HÉR í samræmi við samkomulag milli fyrirtækjanna tveggja um að aflétta trúnaði af langtímasamningum.

Þann 13. nóvember síðastliðinn óskaði Norðurál eftir því við alla orkusala sína að trúnaði af langtímasamningum yrði aflétt.

Orkuveita Reykjavíkur hefur nú fyrst orkufyrirtækja gengið fráafléttingu trúnaðar af samningum og nær afléttingin til orkusölusamnings frá árinu 2008 (hér kallaður OR 2008) þar sem fyrirtækin tvö eru einu aðilarnir að þeim samningi.

Um OR 2008:  Norðurál og Orkuveita Reykjavíkur undirrituðu samning 30. desember 2008 vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík, en einnig var heimild til að nýta orkuna í álveri Norðuráls á Grundartanga. Afhending samkvæmt samningnum hófst árið 2011.

Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls: „Við fögnum því að Orkuveita Reykjavíkur hafi tekið svona vel í umleitanir okkar um að aflétta trúnaði af samningnum. Þetta er mikilvægt skref í að auka gagnsæi á íslenskum raforkumarkaði, sem við teljum mjög til bóta fyrir bæði kaupendur og seljendur raforku, og jafnframt fyrir íslenskan almenning.“

Nánari upplýsingar veitir Sólveig Kr. Bergmann, yfirmaður samskipta hjá Norðuráli, í síma 820 4004 eða í tölvupósti solveig@nordural.is

Sjá einnig