Útlit fyrir að verkfall starfsmanna álversins í Straumsvík hefjist á miðnætti

Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan á Íslandi, segir fyrirtækið ekki ætla að draga í land með kröfur sínar um aukna heimild til verktöku. Um sé að ræða bæði sanngjarnar og samkeppnishæfar kröfur.

Þetta kemur fram í frétt sem Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar fyrir Vísi.is. Jafnframt að sérstakt ákvæði sem hafi verið í kjarasamningunum frá 1972 banni fyrirtækinu að ráða verktaka, nema samið hafi verið um undanþágur. Fyrirtækið vilji fjölga þessum undanþágum – en starfsmenn segi það ekki koma til greina.

„Við erum ekki að biðja um þessum sérstöku reglum sem okkur gilda verði hent út, heldur að þeim verði breytt. Þannig að við teljum afstöðu okkar sanngjarna og hófstillta hvað það varðar. Það hefði alveg verið hægt að ganga lengra, en við gerðum það ekki,“ segir Ólafur.  

Kjaradeila starfsmanna álversins er í algjörum hnút og bendir flest til þess að verkfall hefjist á miðnætti, að því er fram kemur í fréttinni. Þá verði hafist handa við að slökkva á kerjum álversins og ríki því mikil óvissa um framtíð þess.

„Núna bíðum við eftir að sjá hvort viðsemjendur okkar séu tilbúnir til að ræða okkar sanngjörnu kröfu um að færast nær því viðskiptaumhverfi sem önnur umhverfi hafa varðandi verktöku. Ef ekki þá stefnir að óbreyttu í verkfall,“ segir Ólafur. „Okkar vilji númer eitt, tvö og þrjú er að ná samningum og við teljum allar forsendur til þess. Við erum að greiða samkeppnishæf laun, bjóða sanngjarnar hækkanir og ekki að fara fram á neitt sem önnur fyrirtæki á Íslandi hafa ekki. Þannig að við teljum allar forsendur til að semja.“

Samningafundi deiluaðila lauk í hádeginu í gær, án niðurstöðu. Hann hafði þá staðið yfir í tæpa klukkustund og hefur nýr fundur ekki verið boðaður, að því er fram kemur í fréttinni. „Kostnaður við að endurræsa hleypur á hundruðum milljóna. Það er alveg ljóst. Þannig að þetta er niðurstaða sem enginn vill sjá,“ segir Ólafur Teitur. 

Sjá einnig