Starfsfólk Fjarðaáls veitti verðlaununum viðtöku, frá vinstri: Hilmar Sigurbjörnsson, Sigrún Björnsd…
Starfsfólk Fjarðaáls veitti verðlaununum viðtöku, frá vinstri: Hilmar Sigurbjörnsson, Sigrún Björnsdóttir, Guðný B. Hauksdóttir, Kristján Þór Júlíusson samgönguráðherra, Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, Magnús Þór Ásmundsson forstjóri Fjarðaáls, Elísabet Sveinsdóttir, Hólmgrímur Elís Bragason og Valgerður Vilhelmsdóttir.

Alcoa Fjarðaál valið menntafyrirtæki ársins

Alcoa Fjarðaál er menntafyrirtæki ársins 2017. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti í morgun Magnúsi Þór Ásmundssyni forstjóra Fjarðaáls menntaverðlaun atvinnulífsins á menntadegi atvinnulífsins sem haldinn var í fjórða sinn á Hilton Reykjavík Nordica.

Fjarðaál á Reyðarfirði er stærsta iðnfyrirtæki landsins en þar vinna um 530 starfsmenn auk fjölda verktaka. Metnaður er lagður í menntun, þjálfun og fræðslu starfsfólks á hverjum degi. Fyrirtækið rekur stóriðjuskóla sem er samstarfsverkefni Fjarðaáls, Austurbrúar og Verkmenntaskóla Austurlands en um 50 nemendur stunda nám við skólann á hverjum tíma.

„Ég er afar stoltur af því að taka við þessari viðurkenningu fyrir hönd starfsfólks Alcoa Fjarðaáls. Innan Fjarðaáls starfar fjölbreyttur hópur starfsfólks sem eru öll sérfræðingar á sínu sviði. Lykillinn að því að hámarka og viðhalda þekkingu, hæfni og reynslu innan fyrirtækisins er að allt starfsfólk sé reiðubúið að miðla sín á milli í gegnum fræðslustarf og skipulag fyrirtækisins. Ég vil því óska starfsfólki Alcoa Fjarðaáls til hamingju með Menntaverðlaunin og þakka þeim fyrir framlag sitt,“ segir Magnús Þór Ásmundsson forstjóri Fjarðaáls.

Alcoa Fjarðaál og sveitarfélagið Fjarðabyggð  hafa á undanförnum árum unnið að því að efla áhuga ungs fólks á Austfjörðum á verk- og tæknimenntun. Kennarar lögðu sitt af mörkum og aðstaða til kennslu var bætt, námsframboð á verklegum valgreinum var aukið og nemendur hvattir til nýsköpunar auk þess sem þeim var boðið að heimsækja Fjarðaál og kynna sér starfsemi fyrirtækisins.  Verkefnið heppnaðist mjög vel en fjöldi þeirra sem völdu verk- og tækninám að loknum grunnskóla tvöfaldaðist á aðeins þremur árum. Eitthvað sem atvinnulífið hefur lengi kallað eftir.

 „Það er mikilvægt fyrir fyrirtæki í iðnaði að beita sér fyrir því að verk- og tækninámi sé haldið á lofti, það eflt og áhersla lögð á mikilvægi þess. Samvinna atvinnulífsins, skólakerfisins og sveitarfélaganna er lykilatriði í því að árangur náist og að orðum fylgi athafnir. Við munum halda áfram að leggja okkar af mörkum til eflingar verk- og tæknináms, sem og efla þekkingu og hæfni innan fyrirtækisins,“ segir Magnús.

Yfirskrift menntadags atvinnulífsins var Nýjasta máltækni & vísindi og var Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls fundarstjóri. Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs fékk menntasprota atvinnulífsins. 

Sjá einnig