Íslenskt ál í nýjum Mercedes Benz C-Class

Nýkominn er til landsins nýjasta gerð C-Class bílsins frá Mercedes Benz. Eins og með svo marga nýja bíla í dag er mikið af áli notað við smíði hans og svo skemmtilega vill til að hluti þess er framleiddur á Íslandi. Frá þessu segir í frétt Finns Orra Thorlacius á Vísi. Bíllinn er að 50% hluta úr áli, en forveri hans var aðeins byggður að 10% hluta úr áli. Fyrir vikið hefur bíllinn lést um 100 kíló og bæði eyðsla og akstureiginleikar hans hafa batnað til muna. 

Bílablað Fréttablaðsins hefur rétt lokið við að reynsluaka þessum nýja bíl og léttleiki hans og góðir eiginleikar við akstur sönnuðust í þeim akstri. Bíllinn eyddi aðeins 6 lítrum á hverja 100 km í borgarumferðinni, sem þykir gott fyrir svo stóran bíl með öfluga 2,2 lítra dísilvél. BNæsta þriðjudag 20. maí verður ársfundur Samáls, samtaka álframleiðenda. Þar mun aukin álnotkun bílaframleiðenda bera á góma og Lars Wehmeier framkvæmdastjóri vöruþróunar Mercedes Benz mun þar fjalla um álbyltinguna í bílaframleiðslu. Þessi fundur er opinn öllum og verður hann haldinn í Kaldalóni frá 8-10 um morguninn.
Sjá einnig