Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, og Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, við hraðhleðs…
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, og Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, við hraðhleðslustöð Norðuráls á Grundartanga.

Starfsfólki á grænum bílum fjölgar

Norðurál hefur á þriðja tug rafknúinna farartækja í sinni þjónustu sem flytja starfsfólk og vörur á athafnasvæði álversins og nú býr fyrirtækið einnig í haginn fyrir vaxandi fjölda starfsfólks sem aka til og frá vinnu á eigin rafknúnum ökutækjum. Í þessu skyni hafa verið sett upp sérstök græn bílastæði með raftenglum á álverslóðinni þar sem starfsfólki gefst kostur á að hlaða rafbíla sína. Markmiðið er að minnka kolefnisspor, stuðla að vistvænum samgöngum og gera góðan vinnustað enn betri. Orkan er starfsfólki að endurgjaldslausu.

Norðurál er í hópi íslenskra fyrirtækja og stofnana sem skrifuðu undir yfirlýsingu um loftslagsmál í tengslum við loftlagsráðstefnuna í París. Þar með skuldbatt fyrirtækið sig til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif með markvissum aðgerðum. Norðurál hefur náð góðum árangri á þessu sviði og er í hópi þeirra álvera sem best standa sig á heimsvísu. Vel hefur tekist að hámarka nýtingu rafskauta, halda framleiðslunni stöðugri og lágmarka þar með losun lofttegundanna. 

Til fróðleiks:

Um 40% af áli í Evrópu er notað í samgöngur, einkum bíla. Álið léttir bílana, minnkar eldsneytisnotkun og dregur þannig úr losun sem nemur 70 milljónum tonna af kolefni á ári. Þessi sparnaður er meiri en sem nemur heildarlosun evrópsks áliðnaðar á ári hverju. Ál leikur því lykilhlutverk í að minnka losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum. Svo má endurvinna það nær endalaust og nota aftur og aftur.

Sjá einnig