Stóriðjuskóli Norðuráls settur í fyrsta sinn

Stóriðjuskóli Norðuráls var í dag settur í fyrsta sinn á Grundartanga.

Norðurál rekur skólann í samstarfi við Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi og Símenntunarmiðstöð Vesturlands. Námsskrá skólans er viðurkennd af mennta og menningarmálaráðuneytinu. Mjög mikill áhugi er meðal starfsmanna á hinum nýja skóla. Það eru 32 einstaklingar sem hefja nám núna í janúar en 79 sóttu um skólavist.

Námið er þrjár annir og munu fyrstu nemendurnir útskrifast í apríl 2013. Það var Ragnar Guðmundsson forstjóri Norðuráls sem setti skólann formlega við hátíðlega athöfn á fimmtudag.

Sjá einnig