Útflutningstekjur Fjarðaáls 95 milljarðar króna á síðasta ári

Fjarðaál flutti út vörur fyrir um 95 milljarða króna á síðasta ári. Ál nemur um 40% af öllum vöruútflutningi frá landinu, sem er svipað hlutfall og útflutningur sjávarafurða, og nemur hlutur Fjarðaáls í honum um 17 prósentum. Ekkert annað fyrirtæki flytur út meira vörumagn. Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirliti Fjarðaáls um helstu hagstærðir í starfsemi álversins á síðasta ári og nýlega voru gefnar út.

Á árinu urðu um 35% af útflutningstekjum Fjarðaáls eftir í landinu, eða um 33 milljarðar króna, m.a. í formi launa, opinberra gjalda, innkaupa frá innlendum birgjum á vöru og þjónustu og samfélagsstyrkja. Innlendir birgjar Fjarðaáls eru á þriðja hundrað og keypti fyrirtækið vöru og þjónustu fyrir rúma 11 milljarða króna á árinu. Eru raforkukaup þá undanskilin. 

6 milljarðar til fjárfestinga

Fjarðaál hefur frá því að álframleiðsla hófst árið 2007 varið tæpum 9 milljörðum króna til fjárfestinga vegna starfseminnar, þar af um 6 milljörðum á síðasta ári, aðallega til byggingar kersmiðju, sem tók til starfa í júní.

Íbúum fjölgað um 15% í Fjarðabyggð

Eins og fram kom í fjölmiðlum nýlega hefur íbúum Mið-Austurlands fjölgað um rúmlega eitt þúsund frá 2002 eða um 13 prósent. Í sveitarfélaginu Fjarðabyggð, þar sem álverið er, hefur íbúum hins vegar fjölgað ívið meira samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands, eða um rúm 15%.

Rúmlega 480 manns starfa hjá Fjarðaáli auk um þrjú hrundruð manns sem vinna hjá öðrum fyrirtækjum sem sinna dagegri þjónustu við álverið. Af því er varðar starfsmenn Fjarðaáls eiga um 86 prósent lögheimili í nærliggjandi byggðarlögum, 58% í Fjarðabyggð og 28% á Fljótsdalshéraði. Um 5% starfsmanna hafa lögheimili á höfuðborgarsvæðinu. 

Gæðaál frá Reyðarfirði

Árlega framleiðir Fjarðaál rúmlega 340 þúsund tonn af hreinu gæðaáli og álblöndum, sem m.a. eru notað í samgönguiðnaði, svo sem í bíla, flugvélar, járnbrautalestir, geimferjur og alls kyns íhluti sem tengjast viðkomandi iðngreinum. Álblöndur Fjarðaáls, einnig nefndar málmblendi, eru einnig notaðar í fjölbreyttum lausnum í öðrum iðnaði, m.a. hjá fyrirtækjum sem framleiða rafmagnskapla, háspennustrengi og fleira.

Sjá einnig