Viljayfirlýsing um stofnun rannsóknarseturs

Undirbúningur er hafinn að stofnun og rekstri rannsóknarseturs í áli og efnisvísindum.

Viljayfirlýsing um það var undirrituð í morgun af Ragnheiði Elínu Árnadóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Þorsteini Inga Sigfússyni forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Guðrúnu Sævarsdóttur forseta tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík, Ólafi Pétri Pálssyni deildarforseta iðnaðar, vélaverkfræði og tölvunarfræði Háskóla Íslands og Rannveigu Rist stjórnarformanni Samáls, samtakaálframleiðenda.

Meðfylgjandi er viljayfirlýsingin sem undirrituð var:

„Iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Samtök álframleiðenda, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Háskóli Íslands hafa sett sér það sameiginlega markmið að efla nýsköpunar- og þróunarstarf í áliðnaðinum. Með auknu samstarfi verður leitað leiða til að auka virðisauka, efla útflutning og stuðla að fjölbreyttara atvinnulífi.

Á þeim grundvelli verður hafinn undirbúningur að stofnun og rekstri rannsóknaseturs í áli og efnisvísindum sem verður útfært nánar í samstarfi framangreindra aðila og annarra hagsmunaaðila sem tekið hafa þátt í sameiginlegri stefnumótun áliðnaðarins.

Jafnframt lýsa Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Háskólinn í Reykjavík sig reiðubúin til að leggja fram hvort um sig vinnuframlag sem tilsvarar hálfu stöðugildi í óstofnað rannsóknasetur.

Með markvissu samstarfsátaki verða skilgreindar aðgerðir sem ætlað verður að auka verðmætasköpun í greininni og efla undirstöður ál- og efnisiðnaðar. Áliðnaðurinn og tengd starfsemi hefur mikla þýðingu í íslensku efnahagslífi enda hefur útflutningur á áli verið einn stærsti liður í útflutningstekjum landsins. Með samstilltu átaki verður unnið að því að auka samkeppnishæfni áliðnaðarins og tengdra framleiðslu- og þjónustugreina á Íslandi.“

Sjá einnig