Forystumenn íslenska áliðnaðarins eftir stjórnarfund Samáls í vikunni. Frá vinstri: Pétur Blöndal, f…
Forystumenn íslenska áliðnaðarins eftir stjórnarfund Samáls í vikunni. Frá vinstri: Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls, Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan, og Magnús Ásmundsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls. Mynd: STÖÐ 2/Sigurjón Ólason

Yfir 30% hækkun álverðs innspýting í efnahagslífið

Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað um þrjátíu prósent frá því í fyrra. Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls segir þetta mikla innspýtingu fyrir efnahagslífið og afar góð tíðindi fyrir áliðnaðinn hérlendis og íslensku orkufyrirtækin. Hér má sjá umfjöllun um málið í fréttum Stöðvar 2. 

Í fréttinni kemur fram að létt var yfir forstjórum álfyrirtækjanna þriggja á Íslandi eftir stjórnarfund Samáls í vikunni en þau Ragnar Guðmundsson á Grundartanga, Rannveig Rist í Straumsvík og Magnús Ásmundsson á Reyðarfirði horfi nú öll fram á bætt rekstrarumhverfi:

„Heimsmarkaðsverð á áli var á síðasta ári að meðaltali í kringum 1.600 dollarar tonnið en er nú komið yfir 2.100 dollara, sem er yfir þrjátíu prósenta hækkun.

Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls, segir hækkunina meðal annars skýrast af aukinni notkun áls í bílaframleiðslu en ál sé notað til að létta bílana. Rafbílar eins og Tesla séu til dæmis nær eingöngu framleiddir úr áli en því léttari sem rafbílar séu komist þeir lengra á hleðslunni.

Þá hafi Kínverjar verið að loka koladrifnum álverum vegna mengunar en Pétur segir þau losa tífalt meira en þau íslensku. Háværar raddir séu í Kína um að draga úr mengun, þar hafi menn verið að stíga á bremsurnar og það hafi haft töluverð áhrif á markaðinn.

Svo umfangsmikill er ál- og orkuiðnaðurinn hérlendis að hann hefur verið talin þriðja stoðin í íslensku efnahagslífi; á móti ferðaþjónustu og sjávarútvegi. Þrjátíu prósenta verðhækkun áls hefur því umtalsverð áhrif. 

„Þetta er auðvitað mikil innspýting í efnahagslífið og auðvitað styrkir stoðir áliðnaðar,” segir Pétur. 

Hann segir útflutning áls nema yfir 200 milljörðum króna á ári, þar af falli um 90 milljarðar til á Íslandi, mest til orkufyrirtækjanna, sem eiga mikið undir því að álverð haldist hátt. 

„Þau eru öll tengd álverði á einhvern hátt þótt dregið hafi úr því á síðustu árum. Þannig að þetta eru mjög góð tíðindi þar líka.”“

Sjá einnig