Af framboði og eftirspurn áls

Það vakti athygli í haust þegar nýi rafbíllinn I-PACE frá Jagúar var afhjúpaður að búkurinn er nánast alfarið úr áli eða um 94%. Ástæðan fyrir því að rafbílaframleiðendur á borð við Jagúar og Teslu velja ál sem efnivið er að það léttir rafbílana verulega og veldur því að þeir komast mun lengra á hleðslunni.

En það sem meira er, að í I-Pace leggja Novelis og Land Rover-verksmiðjurnar upp úr því að nota eins mikið af endurunnu áli og mögulegt er til þess að minnka kolefnisfótsporið enn meira. Sömu þróunar gætir víða. Til að mynda kynnti Apple „grænustu Mac frá upphafi“ til sögunnar í haust, þar sem kolefnissporið dróst saman um 50%, m.a. með notkun á endurunnu áli. 

Tilfellið er að sá efniviður er vandfundinn sem er endurunninn í meira mæli en ál. Til marks um það fer yfir 90% áls í farartækjum og byggingum á Vesturlöndum til endurvinnslu. Og stöðugt hærra hlutfall áls sem til fellur í heiminum öðlast nýtt líf. Þannig getur gosdós eða bílfelga orðið að tölvu eða geimflaug.

Það eru auðvitað jákvæð tíðindi, enda er afar loftslagsvænt að endurvinna ál. Staðreyndin er sú að við álframleiðslu á heimsvísu verður almennt mesta losunin við orkuvinnsluna. Til þess að endurvinna ál þarf einungis um 5% af orkunni sem fór í að frumframleiða það. Það hefur því afar jákvæð áhrif á kolefnisfótspor áls hversu stór hluti þess ratar til endurvinnslu og er brýnt að hækka það hlutfall enn meira.

Lykilforsendan fyrir háu endurvinnsluhlutfalli áls er að vegna orkusparnaðarins skapast mikil verðmæti við endurvinnsluna. Þar sem ál má endurvinna aftur og aftur án þess það tapi upprunalegum eiginleikum, þá hefur verið talað um það sem nokkurskonar „orkubanka“. Verðmætasköpunin færir aftur stoðir undir rekstur endurvinnslugeirans í Evrópu sem eru að miklu leyti lítil og meðalstór fyrirtæki.

En endurvinnsla áls dugar þó hvergi nærri til að mæta eftirspurn áls á heimsvísu. Útlit er fyrir að frumframleiðsla áls fari yfir 70 milljónir tonna á þessu ári, en ofan á það bætist endurvinnsla áls sem nam um 30 milljónum tonna í fyrra.

Eftirspurnin hefur farið ört vaxandi á síðustu árum og má rekja það til þess að notkun áls er hluti af lausninni í loftslagsmálum. Þannig er ál notað til léttingar bíla og þar með til að draga úr losun CO2. Gott dæmi um það er Wrangler jeppinn sem kynntur var til sögunnar í fyrra, en með meiri álnotkun léttist hann um 35 kíló. Samkvæmt tölum frá World Aluminium spara þau 20 milljón tonn af áli sem notuð eru í samgöngutæki í heiminum um 500 milljón tonn af CO2 eða sem nemur 100 milljörðum tonna af olíu á líftíma farartækjanna.

En álið er til fleiri hluta nytsamlegt. Það er einnig notað til að einangra byggingar og draga þannig úr orkunotkun þeirra, umbúðir úr áli lengja endingartíma matvæla og ál er notað í orkumannvirki til að tengja nýja endurnýjanlega orkukosti við raforkunetið.

Um 75% alls áls sem framleitt hefur verið eru enn í notkun. En þar sem ál er endingargóður málmur, þá er hann notaður í mannvirki og farartæki sem hafa langan líftíma. Og auðvitað er það jákvætt út frá loftslagssjónarmiðum að bílar hafi langan endingartíma en sé ekki hent eftir ársbrúk. Það getur því liðið langur tími frá notkun álsins þar til það ratar aftur út á markaðinn, en þá eru stöðugt meiri líkur á að það sé gripið af hringrásarhagkerfinu.

 

Pétur Blöndal

Höfundur er framkvæmdastjóri Samáls. Pistill sem birtist í Fréttablaðinu 13. febrúar 2019. 

Sjá einnig