Nýir forstjórar hjá Alcoa Fjarðaáli og Alcoa á Íslandi

Janne Sigurðsson, framkvæmdastjóri framleiðslu Alcoa Fjarðaáls, hefur verið ráðin forstjóri Fjarðaáls frá og með 1. janúar 2012 í stað Tómasar Más Sigurðssonar, sem hefur tekið við starfi forstjóra Alcoa í Evrópu með aðsetri í Genf. Jafnframt hefur Magnús Þór Ásmundsson, framkvæmdastjóri framleiðsluþróunar og skautsmiðju hjá Fjarðaáli, tekið við starfi forstjóra Alcoa á Íslandi í stað Tómasar Más Sigurðssonar.

Janne er dönsk að uppruna, fædd í Álaborg í Danmörku árið 1966.

Hún útskrifaðist 1995 sem cand scient í stærðfræði og tölvunarfræði frá Háskólanum í Álaborg. Hún hefur síðan þá aflað sér víðtækrar reynslu af stjórnunarstörfum hjá ýmsum fyrirtækjum í Danmörku og hjá Fjarðaáli við Reyðarfjörð, þangað sem hún réðst til starfa í maí árið 2006. Janne hóf starfsferilinn hjá álverinu sem framkvæmdastjóri upplýsingatækni. Fáum mánuðum síðar varð hún framkvæmdastjóri framleiðsluþróunar og framkvæmdastjóri kerskála var hún frá 2008 til 2010. Hún varð framkvæmdastjóri framleiðslu í apríl 2010. Janne er gift Magnúsi Sigurðssyni, múrara frá Eskifirði, og búa þau þar ásamt börnum sínum tveimur, þeim Tennu og Víkingi.

Magnús Þór er rafmagnsverkfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og M.Sc. frá Danmarks Tekniske Universitet. Magnús, sem starfað hefur hjá Fjarðaáli frá 2009, hefur umfangsmikla reynslu af vöru- og framleiðsluþróunarmálum og hefur m.a. stjórnað innleiðingu stjórnkerfa, umbótum á framleiðsluferlum og í stefnumótun hjá Fjarðaáli. Í hinu nýja starfi mun Magnús Þór meðal annars leiða samfélagstengsl og samskipti við hið opinbera, sameiginleg ferli með Alcoa í Evrópu og fjárfestingarverkefni og þróun fyrirtækisins á Íslandi. Magnús Þór er kvæntur Soffíu G. Brandsdóttur snyrtifræðingi og eiga þau þrjú börn, Sunnu Maríu, Ásmund Hrafn og Sveinbjörn Fróða. Jafnframt starfi sem forstjóri Alcoa á Íslandi mun Magnús Þór gegna áfram starfi framkvæmdastjóra framleiðsluþróunar hjá Fjarðaáli.

Sjá einnig