Nýr kjarasamningur undirritaður hjá Alcoa Fjarðaáli

Nýr kjarasamningur undirritaður hjá Alcoa Fjarðaáli

Föstudaginn 17. júlí var nýr kjarasamningur undirritaður hjá Alcoa Fjarðaáli. Samningurinn sem gildir til fimm ára frá 1. mars 2015 er á milli AFLs starfsgreinafélags, Rafiðnaðarsambandsins og Alcoa Fjarðaáls.

Helstu breytingar í nýjum samningi felast í breyttu vinnutímafyrirkomulagi þannig að vinnustundum vaktavinnufólks á mánuði muni fækka, tekinn verður upp fæðingarstyrkur til starfsmanna í fæðingar- og foreldraorlofi og grunnlaun munu hækka. Einnig er um að ræða viðbætur og hækkanir á launatöflum, desember- og orlofsuppbætur munu hækka og samið er um eingreiðslu til starfsmanna.
 
Magnús Þór Ásmundsson forstjóri Alcoa Fjarðaáls kveðst ánægður með að búið sé að landa nýjum kjarasamningi og telur að hann feli í sér mikla kjarabót fyrir starfsfólk Fjarðaáls. Hann segir að þótt samningaferlið hefði verið langt þá hafi það gengið vel og gott samstarf verið milli aðila.
 
Formleg kynning og atkvæðagreiðsla um samninginn mun fara fram í Fjarðaáli eftir verslunarmannahelgi.

Sjá einnig