Ársfundur Samáls 2018

Álið verður aftur nýtt 

„Álið verður aftur nýtt“ er yfirskrift ársfundar Samáls sem haldinn verður í Hörpu 16. maí. Fundurinn hefst í Kaldalóni kl. 8:30 og stendur til 10:00. Fyrir fundinn verður boðið upp á léttan morgunverð frá 8:00 og eftir fundinn verða kaffiveitingar.
Dagskrá:

8:00 -  Morgunverður. 
8:30 -  Ársfundur.

  • Staða og framtíð íslensks áliðnaðar
    Ragnar Guðmundsson stjórnarformaður Samáls
  • Ávarp
    Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir iðnaðarráðherra
  • Horfur í áliðnaði á heimsvísu
    Justin Hughes frá alþjóðlega greiningarfyrirtækinu CRU
  • Tækifæri í endurvinnslumálum á Íslandi
    Líf Lárusdóttir verkefnastjóri hjá Gámaþjónustunni
  • Nytjahlutir verða til úr áli í sprittkertum
    Ingibjörg Hanna, Olga Ósk og Studio Portland
  • Ál og fiskur
    Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls

10:00 - Kaffispjall að loknum fundi. 


Fundargestum gefst kostur á að skoða hönnunarmuni frá sýningunni #endurvinnumálið sem sett var upp fyrir afmælisopnun Hönnunarmars, en þar vinna fjögur hönnunarteymi nytjahluti sem framleiddir eru úr endurunnu áli. Tilefnið er endurvinnsluátak áls í sprittkertum sem efnt var til yfir hátíðarnar. Undirtektir almennings voru frábærar og varð það til þess að söfnun sprittkerta er orðinn varanlegur kostur í endurvinnsluflóru landsmanna.

Boðið verður upp á morgunverð og að fundi loknum verður kaffispall og veitingar. 

Fundarstjóri er Bjarni Már Gylfason

 

Skráning á ársfund Samáls 2018

Vinstri dálkur
Hægri dálkur