Málmurinn

Ál er léttmálmur og annar mest notaði málmurinn í heimi á eftir stáli. Ál er mjög létt og sterkt miðað við þyngd, það er fremur auðvelt í mótun og vinnslu, það leiðir vel rafstraum og varma og er mjög tæringarþolið. Ál er hægt að endurvinna aftur og aftur. Endurvinnanleiki málmsins hefur leitt til þess að um 75% alls áls sem framleitt hefur verið í heiminum enn í notkun í dag.


Afurðirnar


Ál er haft til mjög fjölbreytilegra nota. Um fjórðungur álnotkunar í heiminum fer til framleiðslu á ýmsum farartækjum. Svipað magn er notað til framleiðslu á neytendavörum og um fimmtungur áls fer til umbúðaiðnaðar.

Lesa meira
skaut_web

Framleiðsluferlið


Til að framleiða 1 kg af áli þarf 2 kg af súráli sem fengið er úr 4 kg af báxíti. Síðan þarf um 0,5 kg af kolefni og um 15,0 kW stundir af raforku.

Lesa meira
Graf---Heimsframleidsla-als-fra-1960

Heimsmarkaðurinn


Framleiðsla áls hefur aukist jafnt og þétt á síðastliðnum 120 árum. Árið 1900 voru framleidd 8 þúsund tonn af áli í heiminum en árið 2010 nam frumframleiðsla áls í heiminum um 40 milljón tonnum.

Lesa meira
deco_02

Sagan


Þrátt fyrir að vera algengasta málmtegund jarðar hefur ál aðeins verið hagnýtt sem hreinn málmur frá miðri 19. öld. Efnablöndur úr áli hafa þó komið við sögu mannsins frá örófi alda.

Lesa meira


Language


Skráðu þig á póstlista

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.