Hér má fylgjast með beinni útsendingu frá ársfundi Samáls 2023 fimmtudaginn 25. maí 2023.
Ársfundur Samáls verður haldinn fimmtudaginn 25. maí kl. 8:30 til 10:00 í Norðurljósum í Hörpu.
Dagskrá
8:00 - Morgunverður. 8:30 - Ársfundur.
Staða og horfur í íslenskum áliðnaði Rannveig Rist, stjórnarformaður Samáls og forstjóri ISAL
Ávarp Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Áskoranir og tækifæri í loftslagsmálum Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, og Steinunn Dögg Steinsen, yfirmaður öryggis- og umhverfismála hjá Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls.
Hringrás og hönnun Tinna Gunnarsdóttir vöruhönnuður
Nýsköpun í áliðnaði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Sunna Ólafsdóttir Wallevik, stofnandi og framkvæmdastjóri Gerosion
Hring eftir hring eftir hring Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls
„Hring eftir hring eftir hring,“ var yfirskrift ársfundar Samáls sem haldinn var í Norðurljósum Hörpu á fimmtudaginn 25. maí. Áhersla var lögð á nýsköpun, sjálfbærni og loftslagsmál.
Alcoa Fjarðaál flutti út vörur fyrir 143 milljarða í fyrra og þar af urðu 43 milljarðar eða 30% eftir í landinu. Þetta kemur fram í nýútkominni samfélagsskýrslu Alcoa Fjarðaáls.