- Samál Samtök álframleiðenda
- Borgartúni 35
- IS-105 Reykjavík
- Iceland
- Framkvæmdastjóri, Guðríður Eldey Arnardóttir er með síma 8200766
- samal@samal.is
Framleiðsla á áli hófst á Íslandi árið 1969 þegar álver Íslenska álfélagsins (Ísal) tók til starfa. Árleg framleiðslugeta áliðnaðarins á Íslandi er nú um 850.000 tonn en til samanburðar eru árlega framleiddar tæpar 60 milljónir tonna af áli í heiminum. Hlutur Íslands í heimsframleiðslunni er því tæp 1,5%.
Fyrirtækin í áliðnaði á Íslandi eru þrjú og þar starfa liðlega 2.000 manns. Samkvæmt mati Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands má gera ráð fyrir að starfamargfaldari áliðnaðarins sé 1,4.
Þrjú álfyrirtæki eru á Íslandi:
Rio Tinto Alcan á Íslandi er staðsett í Straumsvík og er það elsta álver landsins.
Samningar um byggingu álvers á Íslandi voru undirritaðir árið 1966, en viðræður milli svissneska fyrirtækisins Alusuisse og ríkisstjórnar Íslands höfðu þá staðið yfir í nokkur ár. Íslenska álfélagið hf. var stofnað og framkvæmdir hófust í Straumsvík. Þremur árum síðar hófst framleiðsla en verksmiðjan var formlega vígð í maí 1970. Framleiðslugeta álversins var í upphafi um 33.000 tonn á ári í 120 kerum, en síðan hefur verksmiðjan verið stækkuð fjórum sinnum.
Álverið í Straumsvík er rekið af Rio Tinto Alcan á Íslandi hf. sem er hluti af Rio Tinto, einum stærsta álframleiðanda í heimi og alþjóðlegu námafélagi með höfuðstöðvar í London. Félagið var stofnað árið 1873 utan um koparvinnslu á Spáni. Álsvið félagsins nefnist Rio Tinto. Rio Tinto er stærsti álframleiðandi heims auk þess að vera leiðandi í pökkunariðnaði. Höfuðstöðvar Rio Tinto eru í Montreal í Kanada.
ISAL framleiðir hágæðaál í samræmi við óskir viðskiptavina. Fyrirtækið framleiðir fjölmargar málmblöndur í mismunandi stærðum, alls hátt í 200 mismunandi vörutegundir, sem eru fullunnar til völsunar. Álið úr Straumsvík er notað í ýmsar sérhæfðar vörutegundir, svo sem plötur fyrir byggingariðnað, prentplötur, lyfja- og snyrtivöruumbúðir og bifreiðar. Stærstu viðskiptavinir ISAL eru í Þýskalandi en fyrirtækið selur einnig ál til annarra landa.
Álver Norðuráls á Grundartanga var gangsett í júní 1998.
Century Aluminum festi kaup á Norðuráli í apríl 2004 en áður var fyrirtækið dótturfyrirtæki Columbia Ventures Corporation (CVC) sem er í eigu Kenneth D. Peterson Jr. Century Aluminum er með höfuðstöðvar í Monterey í Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði hóf rekstur árið 2007. Fjarðaál er eitt nútímalegasta og tæknivæddasta álver í heimi og er til fyrirmyndar hvað varðar umhverfisvernd. Álverið er það stærsta á Íslandi en framleiðslugeta þess er allt að 360 þúsund tonn af áli á ári.
Alcoa Fjarðaál sf. er í eigu Alcoa, Inc. sem er einn stærsti álframleiðandi heims með starfsstöðvar í 31 landi víðsvegar um heiminn og um 57 þúsund starfsmenn. Fyrirtækið var stofnað árið 1888 og eru höfuðstöðvar þess í Pittsburgh í Pennsylvaníufylki í Bandaríkjunum. Þegar álver fyrirtækisins á Reyðarfirði var reist hafði Alcoa ekki byggt nýtt álver í rúm 20 ár. Ekkert var til sparað til að það gæti orðið eitt fullkomnasta álver heims.