„Ég hlakka til að hefja störf á nýjum og spennandi vettvangi,“ segir Guðríður Eldey Arnardóttir sem …
„Ég hlakka til að hefja störf á nýjum og spennandi vettvangi,“ segir Guðríður Eldey Arnardóttir sem ráðin hefur verið framkvæmdastjóri Samáls.

Guð­ríður Eld­ey nýr fram­kvæmda­stjóri Samáls

Guðríður Eldey Arnardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samáls, Samtaka álframleiðanda á Íslandi. Guðríður mun taka við starfinu af Pétri Blöndal, en hann hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra frá árinu 2013.

Ég hlakka til að hefja störf á nýjum og spennandi vettvangi. Ál hefur svo marga kosti, meðal annars er álið létt og endurvinnsluhlutfall þess er hátt. Álframleiðsla hér á landi er mikilvægt framlag til umhverfis – og loftlagsmála á heimsvísu, hér er framleiðsla áls eins umhverfisvæn og tækni dagsins í dag býður upp á, raforka til framleiðslunnar kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum og stöðugt hefur dregið úr kolefnislosun vegna framleiðslunnar sjálfrar “ segir Guðríður Eldey í tilkynningu frá Samáli.

Þar kemur fram að hún sé með fjölbreytta starfsreynslu. Bæði hjá hinu opinbera og á almennum markaði. Hún hefur meðal annars unnið við markaðsmál, fjölmiðla- og kynningarmál og sinnt kjarasamningagerð.

Guðríður kenndi raungreinar um árabil og hefur síðustu ár verið skólameistari Menntaskólans í Kópavogi. Guðríður er með B.S gráðu í jarðfræði og diplómur í kennslufræði, viðskiptafræði og opinberri stjórnsýslu.

Starfssvið Guðríðar verður með áherslu á framþróun umhverfismála, öryggis- og heilbrigðismála og hún mun beita sér fyrir framþróun menntamála í áliðnaði. Hún mun auk þess sinna upplýsingagjöf til almennings og samskiptum við hagaðila, yfirvöld og fjölmiðla.

Markmið Samáls er að vinna að framþróun íslensks áliðnaðar, efla upplýsingastreymi og fræðslu um áliðnaðinn. Aðild að Samáli eiga allir íslenskir álframleiðendur, Rio Tinto á Íslandi, Alcoa Fjarðaál og Norðurál.

Sjá einnig