Kosningafundur SI í beinni útsendingu frá Norðurljósum

Kosningafundur SI í beinni útsendingu frá Norðurljósum

Kosningafundur SI með forystufólki stjórnmálaflokkanna verður í beinni útsendingu frá Norðurljósum í Hörpu í dag miðvikudaginn 8. september kl. 13.00-15.00.

Samtök iðnaðarins vilja leggja sitt af mörkum til uppbyggilegrar umræðu í aðdraganda Alþingiskosninga og vekja athygli á þeim málefnum sem brýnust eru fyrir samkeppnishæfni Íslands; menntun – innviðir – nýsköpun – starfsumhverfi – orka og umhverfi. Í upphafi nýs kjörtímabils verða teknar ákvarðanir sem ráða miklu um efnahagslega framtíð Íslands. Miklu máli skiptir að stjórnvöld vinni að umbótum sem leiða til hagsældar, bæði fyrir fólk og fyrirtæki. Á fundinum verða málefnin fimm til umræðu auk þess sem kastljósinu verður beint að þeim tækifærum sem grípa þarf til að auka útflutningstekjur þjóðarbúsins.

Þátttakendur í dagskrá

  • Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Katrín Jakobsdóttir, VG
  • Willum Þór Þórsson, Framsóknarflokkur
  • Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokkur
  • Daði Már Kristófersson, Viðreisn
  • Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Miðflokkurinn
  • Björn Leví Gunnarsson, Píratar
  • Kristrún Frostadóttir, Samfylking
  • Inga Sæland, Flokkur fólksins
  • Gunnar Smári Egilsson, Sósíalistaflokkurinn

Hér er hægt að nálgast útsendinguna.

Sjá einnig