Norð­ur­ál fær græn­a fjár­mögn­un hjá Ari­on bank­a fyr­ir 16 millj­arð­a fjár­fest­ing­a­verk­efn­i

Fulltrúar Norðuráls og Arion banka hafa skrifað undir samning um græna fjármögnun á nýrri framleiðslulínu í steypuskála Norðuráls á Grundartanga. Um er að ræða fjárfestingaverkefni sem hleypur á um 120 milljónum dala, eða tæpum 16 milljörðum króna. Hér má lesa umfjöllun Fréttablaðsins. 

Ný framleiðslulína gerir Norðuráli kleift að vinna fleiri og verðmætari vörur úr því áli sem unnið er í álveri fyrirtækisins. Framleiddar verða álstangir til að mæta mikilli eftirspurn frá evrópskum viðskiptavinum, en stangirnar verða nýttar í vörur eins og bíla, flugvélar, byggingar og raftæki. Aukið vöruframboð styrkir jafnframt vörumerki Norðuráls, Natur-AlTM, en kolefnisspor þess er með því lægsta í heimi.

Ekki er um að ræða aukningu á álframleiðslu, heldur verður álið unnið áfram og verðmeiri afurð en áður búin til en áður, en álstangir eru verðmætari en hleifar sem steyptir eru í núverandi steypuskála. Með nýrri framleiðslulínu sparast umtalsverð orka í steypuferlinu eða um 40 prósent auk þess sem útflutningstekjur Norðuráls aukast um yfir 4 milljarða á ári.

Byggingarframkvæmdir skapi um 100 störf

Byggingarframkvæmdir munu skapa um 100 störf, en þegar við gangsetningu nýju framleiðslulínunnar skapast um 40 störf til framtíðar, segir í tilkynningunni.

Arion banki gaf í sumar út sína fyrstu grænu fjármálaumgjörð sem tekur til fjármögnunar bankans og lánveitinga. Umgjörðin fjallar m.a. um þau skilyrði sem lánveitingar bankans þurfa að uppfylla til að teljast grænar. Umgjörðin er byggð á viðmiðum Alþjóðasamtaka aðila á verðbréfamarkaði, ICMA, og horfir til flokkunarkerfis Evrópusambandsins og heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Norska matsfyrirtækið Cicero veitti álit á umgjörðinni.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, segist fagna því að fá tækifæri til að taka þátt í þessu spennandi verkefni með Norðuráli. „Verkefnið hefur margvísleg jákvæð áhrif og skapar tugi nýrra starfa. Í kjölfar þess að hafa gefið út heildstæðan grænan fjármálaramma síðastliðið sumar fórum við í okkar fyrstu alþjóðlegu grænu skuldabréfaútgáfu þar sem við nutum hagstæðra kjara. Það er einstaklega ánægjulegt að Norðurál fái nú notið góðs af þeim kjörum og styðja við verkefni sem gerir fyrirtækinu kleift að framleiða verðmætari vörur hér á landi með minni orkunotkun og minna kolefnisspori.“

Sigrún Helgadóttir, framkvæmdastjóri Norðuráls Grundartanga, segir að með því að nýta endurnýjanlega raforku til að vinna álið áfram á Íslandi verði til aukin verðmæti á Íslandi og aukin verðmæti verði eftir á Íslandi. „Við erum með þessu bæði að stuðla að minni orkunotkun og minni losun gróðurhúsalofttegunda í álframleiðslunni. Það er til marks um það hversu jákvæð umhverfisáhrif verkefnisins eru að lánveitingin fellur undir græna fjármálaumgjörð Arion banka.“

Sjá einnig